Aðalfundur 2016

Aðalfundur Samtaka um söguferðaþjónustu 2016

verður haldinn í Norræna húsinu föstudaginn 29. apríl kl. 10.

Stjórn Samtaka um sögugferðaþjónustu boðar til aðalfundar samtakanna í Norræna húsinu föstudaginn 29. apríl kl. 10.00. Gögn fundarins er hægt að nálgast hér fyrir neðan. Dagskrá fundarins skv. samþykktum:

  1. Skýrsla stjórnar fyrir liðið starfsár.
  2. Kynning og afgreiðsla aðildarumsókna.
  3. Afgreiðsla reikninga.
  4. Lagabreytingar (engar fyrirliggjandi)
  5. Starfsáætlun fyrir komandi starfsár og fjárhagsáætlun.
  6. Ákvörðun árgjalds.
  7. Kosning stjórnar og skoðunarmanna reikninga.
  8. Önnur mál.

 

Tillögur stjórnar samtakanna vegna 6. dagskrárliðar, ákvörðunar árgjalds:

  1. Tillaga um árgjald:

Á síðasta aðalfundi SSF var samþykkt að veltutengja árgjald samtakanna og hafa fjóra gjaldflokka. Stjórn leggur nú til að flokkarnir verði aðeins þrír og  innifalið í árgjaldi fyrir fulla aðild sé eftirfarandi:

  • grunnskráning á vefinn sagatrail.is / soguslodir.is
  • límmiði fyrir glugga eða vegg um aðild að SSF
  • 50% afsláttur af þátttökugjöldum á fundum og ráðstefnum SSF

 

Árgjald 2016                                                         Full aðild                     Aukaaðild (75%)

Gjaldflokkur 1 (ársvelta allt að 10 m.kr.)              16.000 kr.                   12.000 kr.

Gjaldflokkur 2 (ársvelta 10-40 mkr.)                    24.000 kr.                    18.000 kr.

Gjaldflokkur 3 (ársvelta yfir 40 m.kr.)                  30.000 kr.                    22.500 kr.

Einstaklingar með aukaaðild greiði 6.000 kr.

 

  1. Tillaga um kynningargjald:

Frá árinu 2007 hefur kynningargjald verið 100.000 kr. og það hafa greitt þeir sem tekið hafa þátt í bæklingum samtakanna. Ákveðið hefur verið að draga úr bæklingaútgáfu SSF en beina fjármagni í meira mæli að netmarkaðssetningu. Í þeim tilgangi að fjölga þeim sem greiða kynningargjald og efla slagkraft markaðsstarfsins leggur stjórn samtakanna til að gjaldið verði 90.000 kr. árið 2016. Og að innifalið í kynningargjaldi sé eftirfarandi:

  • ítarskráning á vef, s.s. skráning í fleiri flokka og í söguhringi
  • staðsetning og upplýsingar í prentuðu kynningarefni
  • afsláttur á auglýsingum
    • hjá samstarfsaðilum SSF, s.s. Safnabókin
    • í auglýsingaherferðum SSF
  • fáni samtakanna (1 stk.)
  • aðgengi að ljósmyndagrunni SSF
  • aðstoð starfsmanns SSF við sýnileika á vef, s.s. TripAdvisor og Google Maps

 

FUNDARGÖGN:

Ársreikningur SSF 2015

Aðalfundarboð 2016

Starfsáætlun 2016

Fjárhagsáætlun 2016